Kristel Eva í
jólamyndatökunni 2007
Jújú, ég er löngu komin heim og hef
það aldeilis gott hérna í B16 á flísfötunum ...
Ég held að ég sé eiginlega ekki
búin að gera neitt nema bara hanga með familíunni og hafa það gott
... og að sjálfsögðu borða og er ég m.a.s. búin að fá hangiket og
malt og appelsín - slúpp!
Í kvöld var jólakortamyndataka og
er ég að dunda mér aðeins í myndunum núna ... spurning hvort
einhver þeirra verði notuð ... stellan var orðin svolítið lúin
greyið og lét ekki mjög vel að stjórn ... en falleg er hún nú samt
alltaf þessi elska - með toppinn ofan í augu!
Bið að heilsa ykkur og hafið það
gott***